Fasteignakóngurinn Hannes Steindórsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til þess að setjast í bæjarstjórn Kópavogs fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Hannes er einn þekktasti fasteignasali landsins og formaður Félags fasteignsala. Hann rekur Fasteignasöluna Lind sem hefur sprungið út á liðnum árum.
Miklar breytingar verða í forystu Kópavogs við kosningarnar í vor. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri og leiðtogi sjálfstæðismanna, hefur ákveðið að hætta. Þar með opnast tækifæri fyrir nýtt fólk og nýjan leiðtoga.
„Það er hollt fyrir Kópavog að fá nýtt fólk í bæjarstjórn og ég er sannfærður um að ég geti lagt mitt að af mörkum að gera gott betra. Ég er Kópavogsbúi og vill hvergi annarstaðar vera,“ sagði Hannes. Hann sagði í samtali við Mannlíf óska eftir 4. sætinu.