Kylie Jenner(24) og Travis Scott(30) eignuðust sitt annað barn þann 2. febrúar síðastliðinn en fyrir eiga þau dótturina Stormi sem er fjögurra ára gömul.
Kylie setti mynd á Instagram síðu sína af hendi barnsins en við myndina skrifar hún fæðingadag þess og setur blátt hjarta. Samkvæmt erlendum slúðurmiðlum er talið líklegt að um dreng sé að ræða þó það hafi ekki verið staðfest.
Kylie Jenner sem var metin á 78 milljarða á síðsta ári komst á lista árið 2019 yfir yngstu sjálfskapaða milljarðamæringa heims.
Hefur það verið umdeilt hvort milljarðarnir séu í raun sjálfskapaðir en er hún hálf systir Kardashian systranna.
Þá verður áhugavert að sjá hvernig fjölskyldan heldur upp á fæðingu barnsins en kostaði ein afmælisveisla Stormi litlu rúmar tólf milljónir króna.