Alma Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn bendir á ótrúlega staðreynd á Twitter varðandi styrk sem Háspenna ehf. fékk frá Ríkinu.
Bendir hún á að Háspenna ehf. sem rekur spilakalla fyrir Háskóla Íslands hafi fengið 17 milljónir króna í lokunarstyrk á árinu 2020, frá Ríkinu en á því ári greiddi félagið sér 12 milljónir í arð. Hér fyrir neðan er færsla Ölmu
„Háspenna sem rekur spilakassa fyrir @Haskoli_Islands fékk rúmlega 17 milljónir í „lokunarstyrk“ á árinu 2020 sem var eins gott, annars hefði verið erfitt að greiða eigendum fyrirtækisins 12 milljónir í arð á því ári. En það tókst, þökk sé ríkissjóði fyrir hönd skattgreiðenda.“
Birti Alma einnig ársskýrslu félagsins þar sem fram kemur að hagnaður félagsins á árinu 2020 hafi verið tæpar 10,5 milljónir króna. Þrátt fyrir þetta greiða eigendurnir, þeir Bjarni Vilhjálmsson og Jón Hjaltason, sér 12 milljónir í arð, sama ár.
Háspenna sem rekur spilakassa fyrir @Haskoli_Islands fékk rúmlega 17 milljónir í „lokunarstyrk“ á árinu 2020 sem var eins gott, annars hefði verið erfitt að greiða eigendum fyrirtækisins 12 milljónir í arð á því ári.
En það tókst, þökk sé ríkissjóði fyrir hönd skattgreiðenda.” pic.twitter.com/RUGiGlGXwJ
— Alma Hafsteins (@almabhafsteins) February 9, 2022