- Auglýsing -
„Búið er að finna lík allra þeirra sem voru um borð í TF ABB og ná þeim í land. Nú er matarhlé og síðan verða aðgerðir morgundagsins skipulagðar. Nánari upplýsingar í fyrramálið“ segir á Facebook síðu Lögreglunnar á Suðurlandi.
Fjórir létu lífið í slysinu, Flugmaðurinn Haraldur Diego og þrír ferðamenn, Bandaríkjamaðurinn Josh Neuman, 22 ára gamall, Nicola Bellavia, 32 ára gamall Belgi og hinn 27 ára Tim Alings, Hollendingur.