- Auglýsing -
Fjórir voru skotnir fyrir utan veitingastað í Hollywood þar sem Justin Bieber hélt teiti eftir tónleika. Fjöldi manns voru saman komin fyrir utan þar sem slagur braust út, vitni segja allavega tíu skotum hafa verið skotið og staðfest er að fjórir særðust.
Slaðasir voru fluttir á slysadeild og eru ekki í lífshættu samkvæmt heimildum TMZ.
Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við málið og er því byssumaðurinn enn laus.
Frægir á borð við Drake, Leonardo DiCaprio, Tobey Maguire, Kendall Jenner og Khloe Kardashian voru gestir í veislunni.