- Auglýsing -
Lögregla sinnti í nótt útkalli, laust fyrir klukkan hálf fimm, vegna innbrots í fyrirtæki í póstnúmeri 108 í Reykjavík.
Rétt fyrir klukkan eitt í nótt var lögregla kölluð til vegna tilkynningar um líkamsárás í miðbænum.
Tilkynnt var um eignaspjöll í Hlíðahverfi í Reykjavík, klukkan hálf tíu í gærkvöldi. Lögregla var kölluð á vettvang vegna skemmdarvarganna.
Nokkuð var um umferðaróhöpp, en þrjú slík urðu á milli klukkan átta og ellefu í gærkvöldi þar sem lögregla var kölluð til. Ekki virðist um alvarleg atvik hafa verið að ræða.