- Auglýsing -
Halldór Hreinsson er einn farsælasti kaupmaður landsins og engum öðrum líkur. Hann er betur þekktur sem Dóri í Fjallakofanum en það fyrirtæki er fyrir löngu orðið að stórveldi. Halldór hefur starfað við verslun allt frá 11 ára aldri þegar hann hjálpaði föður sínum í Melabúðinni. Seinna var það Skátabúðin og svo Útilíf. Þremur árum eftir að Baugur tók verslunina yfir hvarf Dóri á braut með hvelli og Fjallakofinn hóf sigurgöngu sína. Í dag er Baugur ekki til en Fjallakofinn er stórveldi.
Halldór segir frá ævintýrunum, slysunum opg lífshamingjunni í viðtalinu og hvernig hann komst á forsíðu norsks dagblaðs sem ungur maður.