Ida María Brynjarsdóttir og maðurinn hennar, Eysteinn Örn Stefánsson eignuðust sitt annað barn á þriðjudaginn þann 22 febrúar eða 22.02.2022 á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Ekki er nóg með það að stúlkan hafi fæðst á þessari einstöku dagsetningu heldur kom hún í heiminn klukkan 2.22.
Fæðingin gekk hratt fyrir sig. „Við fórum upp á fæðingardeild klukkan hálf tvö. Hún fæðist 22 mínútur yfir tvö,“ segir Ida í samtali við Fréttablaðið.
Fyrir eiga Ida og Eysteinn þriggja ára stúlku, Ylfu Lísu. Þau búa í Arkarholti á Vesturlandi. Eysteinn er smiður og Ida vann á kúabúi mest alla meðgönguna.