Vesturbærinn hefur lengi vel verið eitt eftirsóttasta hverfið á höfuðborgarsvæðinu. Við Fornhaga 19 í stendur fjórbýlishús en er það á horni Fornhaga og Hjarðarhaga. Fasteignasalan Lind hefur á skrá hjá sér eina hæð í húsinu sem er mikið endurnýjuð, stórglæsileg og hafa núverandi eigendur þakið veggina af stórkostlegri list.
Íbúðin er fimm herbergja og skráð 149,1 fermetrar að stærð. Þar af er bílskúr sem breytt hefur verið í snyrtilega stúdíóíbúð 39,6 fermetrar og því frábær möguleiki á leigutekjum.
Gengið er inn í íbúðina upp stiga en sjávarútsýni er úr stofunni. Borðstofa og stofa eru samliggjandi og fallegir skrautlistar í lofti passa sérstaklega vel við íbúðina en húsið er byggt árið 1957. Núverandi eigandi hefur svo sannlega “masterað“ uppsetningu á húsgögnum og hlýja tóna í húsgögnum og mottum má sjá í öllum herbergjum.
Eldhúsið hefur verið endurnýjað og er það eitt besta dæmi um hvernig hægt er að blanda saman gömlu og nýju. Gott skápapláss og takið eftir bekknum við gluggann.
Baðherbergið hefur einnig verið tekið í gegn og plássið þar nýtt sem best. Glerið í sturtunni opnar rýmið og gefur baðherberginu þannig flæði svo það virkar töluvert stærra. Góð lýsing er á baðherbeginu, meðal annars innbyggð veggljós líkt og sést á mynd.
Stúdíóíbúðin er snyrtileg og hver einasti fermeter vel nýttur. Fyrir þá sem vilja sjá meira af þessari fallegu eign er hægt að nálgast upplýsingar á vef fasteignasölunnar en þar má einnig sjá fleiri myndir.