- Auglýsing -
Erla Hlynsdóttir, blaðakona DV, var hissa á auglýsingapósti sem nýlega kom inn um bréfalúguna. Bréfið var nefnilega ekki stílað á hana heldur unga dóttur hennar. Sendandinn var Þjóðkirkjan.
Erla var það hissa, enda þær mæðgur hvorugar skráðar í Þjóðkirkjuna, að hún ákvað að spyrja netverja hvort þetta hreinlega væri í lagi. Í færslu á Facebook spyr hún:
„Má Þjóðkirkjan senda barninu mínu auglýsingapóst?“
Fjölmargir blanda sér í umræðuna og reyna að svara spurningu Erlu. Rannveig er ein þeirra sem telur kirkjuna mega þetta. „Já… rétt eins og íþróttafélögin, skátarnir, blómaval, garðheimar, ljósmyndarar o.s.frv. En ég er sían á heimilinu (eða við foreldrarnir) og höfum látið alls konar stuff hverfa sem hefur verið sent til þeirra,“ segir Rannveig.
Önnur Erla setur líka fram skoðuna sína á sendingunni. „Þarftu ekki að bannmerkja þig og þá væntanlega barnið þitt líka í þjóðskrá til að fá ekki svona póst? Annars fékk dóttir mín markpóst frá Borgarbókasafninu og ég var ekki alveg sátt að fá svona stílað á barnið. Finnst að börn eigi að vera undanþegin markpósti og ef fyrirtæki eða stofnanir vilja koma einhverju á framfæri þá eigi það að fara í gegnum foreldra,“ segir Erla.
Hrefna nokkur furðar sig á vinnubrögðum Þjóðkirkjunnar. „Eru þau með löggilda heimild fyrir vinnslu persónuupplýsinga um hana? Veistu hvernig þau vita að hún sé til? Þú eða hún (ef hún er yfir 13) getur vísað í GDPR til að fá allar persónuupplýsingar sem kirkjan er með um hana, heimildirnar sem hún hefur fyrir vinnslu þeirra, og krafist að þeim upplýsingum verði eytt,“ segir Hrefna ákveðin.