Þór Sigurgeirsson verður næsti oddviti Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi og væntanlega bæjarstjóri ef markmið flokksins nást. Þetta varð ljóst við úrslit prófkjörs flokksins. Úrslitin koma nokkuð á óvart því flestir spáðu Magnúsi Erni Guðmundssyni yfirburðasigri. Hann var talinn frambjóðandi flokkseigendafélagsins. Þá hafði frænka Bjarna Benediktssonar, Ragnhildur Jónsdóttir, verið talin sigurstrangleg en hún er Engeyingur og þykir vel til forystu fallin af þeim sökum. En eins og stundum gerist í pólitík þá varð niðurstaðan nokkuð þvert á spár og hún hafnaði í öðru sæti. Sonur gamla bæjarstjórans, Sigurgeirs Sigurðssonar, kom sá og sigraði og er tekinn við sem leiðtogi og Sjálfstæðismenn vonast eftir nýrri gullöld á Nesinu eins og var í tíð Sigurgeirs heitins sem þótt halda fast um stjórnartaumana …