Það lét ekki mikið yfir sér Reykjavíkurþing sjálfstæðisfélagsins Varðar sem haldið var um helgina. Þar var ætlunin að pússa herlúðrana áður en lagt verði upp í sigurför gegn Degi B. Eggertssyni borgarstjóra og samtíningi hans. Fundurinn er haldinn í skugga þess að Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík mælist vera í fylgishruni eftir að Eyþór Arnalds, leiðtogi borgarstjórnarflokksins, ákvað skyndilega að hætta. Hann flutti tölu á fundinum og reyndi að blása sínu fólki kjark í brjóst.
Samkvæmt yfirlitsmynd í lokin voru ekki nema 30 manns mætt á fundinn. Þar af voru um 10 frambjóðendur í væntanlegu prófkjöri flokksins. Fundurinn var sendur beint út á Facebook. Þar þóttu lokaorð Bjarna Benediktssonar formanns sérlega hnyttin og í anda gleðimanna Valhallar sem drekka og deyja á víxl. „Og þá eru erindin búin og við bara tökum til við að skála,“ …“