Bjór er ekki bara góður kaldur í góðra vina hópi, heldur má líka brúka hann í bakstur og matargerð.
Hér er skemmtilegt uppskrift að ostaskonsum sem innihalda bjór og eru frábærar með til dæmis rjómaosti og góðu sinnepi. Þær passa líka einstaklega vel með súpum.
OSTASKONSUR MEÐ BJÓR
8 stk.
5 dl hveiti
1 msk. sykur
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
u.þ.b. 1 dl saxaður graslaukur
100 g rifinn ostur, t.d. cheddar
80 g kalt smjör, skorið í litla bita
2 dl ljós bjór
2 egg
2 tsk. dijon-sinnep
Hitið ofn í 200°C. Blandið þurrefnunum saman, ásamt osti og graslauk. Myljið smjörið saman við með fingrunum. Blandið saman bjór, eggjum og dijonsinnepi og hrærið létt saman við þurrefnin.
Hnoðið nokkrum sinnum þar til deigið hangir saman. Mótið u.þ.b. 4 cm þykkan hringlaga hleif á bökunarpappír og skerið deigið í 8 parta. Eins má líka móta bollur eða skera út skonsurnar með hringlaga móti.
Bakið í u.þ.b. 25 mín. eða þar til skonsurnar hafa tekið fallegan lit.
Umsjón / Kristín Dröfn Einarsdóttir
Myndir / Aldís Pálsdóttir
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernudóttir