„Það er mikilvægt að hafa í huga að þetta stríð hófst í febrúar 2014 og úkraínska þjóðin mun enn þurfa á hjálp að halda þegar því lýkur,“ sagði Ljúbómíra Petrúk, stjórnarformaður Félags Úkraínumanna á Íslandi, í samtali við mbl.is.
Félag Úkraínumanna á Íslandi vinnur nú að því að skipuleggja flug til Úkraínu þar sem nauðsynjar verða fluttar til flóttamanna.
Ljúbómíra sagði að hann hafði fundið fyrir miklum stuðningi allsstaðar að, bæði frá Íslendingum og litháíska- og pólska samfélaginu. „Þetta skiptir okkur miklu máli,“
Flóttafólkið býr við rafmagnsleysi og verður hlýr fatnaður, lýsi og matur sem geymist vel meðal þess sem flutt verður út. Þá hefur sölustjóri Lýsis tekið vel í beiðni þeirra og Icewear samþykkt að gefa þeim afslátt af fatnaði. „Okkur langar til að hjálpa Úkraínu og við teljum að þetta sé ekki bara Úkraína sem er í vandræðum, heldur er allur heimurinn þátttakandi og er undir áhrifum eða verður fyrir áhrifum af þessu stríði sem Rússland hóf.“
Þeir sem vilja styrkja Félag Úkraínumanna á Íslandi er reikningsnúmer og kennitala hér að neðan:
Bankanúmer:0189-26-004211 – kennitala: 421112-0100