Framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar segir ekki að sjá að neitt hafi farið úrskeiðis í símakosningu í gærkvöldi. Svarhlutfall símtala hafi verið 99,6 prósent.
Það hefur líklega ekki farið fram hjá mörgum að systurnar Sigga, Beta og Elín fóru með sigur af hólmi í Söngvakeppni sjónvarpsins í gær og verða þannig framlag Íslands í Eurovision í maí. Lag þeirra, Með hækkandi sól, er samið af tónlistarkonunni Lovísu Elísabetu Sigrúnardóttur sem landsmenn þekkja sennilega betur sem LayLow.
Fljótlega eftir að úrslit Söngvakeppninnar voru ljós fór af stað umræða um að ekki hefði verið hægt að hringja inn í ákveðin númer í símakosningunni. Hæst í þessari umræðu fóru stuðningsmenn Reykjavíkurdætra, sem hrepptu annað sætið í keppninni. Á Twitter fullyrtu sumir að þeir hefðu ekki náð inn þegar kjósa átti sveitina. Rúnar Freyr Gíslason, framkvæmdastjóri keppninnar, segir hins vegar ekki að sjá að neitt hafi farið úrskeiðis.
„Við nánari greiningu núna í morgun þá er ekki að sjá að það hafi verið nein sérstök vandamál við afgreiðslu símtala eða sms-a inn á kosningakerfið sjálft. Svarhlutfall símtala var 99,6% og frávísanir vegna álags voru bara 0,4% og þau voru ekki bundin við ákveðin kosninganúmer,“ segir Rúnar í samtali við RÚV.
Venju samkvæmt voru einhverjir sem náðu ekki í gegn með sín atkvæði þegar sem mest álag var á kerfinu. Málið var skoðað með Vodafone, sem sá um atkvæðagreiðsluna og miðað við þá greiningu var ekkert óvenjulegt við svarhlutfallið. Rúnar segir þetta ekki í fyrsta sinn sem þessi umræða skapist.
Hann nefnir sérstaklega að fólk sem sé með frelsisreikninga lendi oft og tíðum í vandræðum í kosningum sem þessari, þegar það eigi ekki næga inneign.
„Sá sem ég talaði við bendir hins vegar á að stundum getur fólk ekki kosið ef það er með svokölluð frelsisnúmer og það hefur oft valdið misskilningi hjá notendum; að þeir haldi að þeir eigi inneign fyrir þessu en eiga ekki,“ segir Rúnar í samtali við RÚV.
Hann áréttar að svarhlutfallið sé í samræmi við það sem venjulega sé og að frávísanir vegna álags, sem voru aðeins um 0,4 prósent, hafi ekki verið bundin við ákveðin kosninganúmer.
Margir að tala um að það hafi komið called failed hjá RVKDTR hvað er að fokking frétta???? Nýja kosningu núna strax #12stig
— 𝚁 𝙰 𝙶 𝙶 𝙰 🦋 🇺🇦 (@raggaj89) March 12, 2022
Úff jæja, nú byrjar stóra kosningamálið #12stig pic.twitter.com/q6DMIRNHyA
— Jón Bjarni (@jonbjarni14) March 12, 2022
Þessi hafði vit á því að reyna ekki:
Dáist að fólki sem kýs í svona símakosningum, ég hef ekki átt inneign í símanum mínum síðan 2009 #12stig
— Bríet Píslarvottur (@thvengur) March 12, 2022