Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaðurinn geðþekki, fullyrðir að sænska Eurovision-stjarnan Tusse viti vel hvaða íslenska orðs nafni hans svipar til.
„Ég get vottað að honum er fullkunnugt um merkingu orðsins. Ég hafði sagt sænskum kollega mínum frá því og hann sagði Tusse. Þegar ég hitti Tusse daginn eftir í keppnishöllinni kom hann til mín og sagði: ‘Oh so you are the commentator from Iceland. Pleased to meet you, I’m Cunt.’“ („Svo þú ert þulurinn frá Íslandi. Gaman að kynnast þér, ég er tussa.“)
Tusse tróð upp á lokakvöldi Söngvakeppninnar á laugardaginn og er óhætt að segja að atriðið hafi vakið mikla lukku. Lagið hans, Voices, er sama lag og hann flutti í Eurovison í Rotterdam í fyrra. Þar hafnaði Tusse í 14. sæti.
Þeir voru sennilega ófáir, Íslendingarnir sem skemmtu sér yfir fimmaurahúmornum sem nafn sænska söngvarans kynti undir. Undir myllumerkinu #12stig á Twitter má finna nokkrar færslur þar sem þessu er velt upp.
Ég beið og beið og beið eftir spurningunni um hvort Tusse þekkti til íslenska orðsins tussa. #12stig
— Margrét Erla Maack (@mokkilitli) March 12, 2022
Sumir vonuðust til þess að íslensku kynnarnir myndu brjóta ísinn.
Björg „Hey Tusse did you know your name sounds like tussa in Icelandic“ #12stig
— gunnare (@gunnare) March 12, 2022
Einhverjir Svíar höfðu áhyggjur af Melodifestivalen, forkeppni Svíþjóðar fyrir Eurovision, fyrst Tusse væri staddur hér. Úrslitakvöld þeirra var á laugardaginn, eins og á Íslandi. Einhverjir höfðu gert ráð fyrir því að Tusse myndi afhenda bikarinn, sem sigurvegarinn frá því í fyrra.
Wait if Tusse is performing at Söngvakeppnin then who’s gonna give out the trophy?!😱😱😱 #melfest
— malin🇸🇪🇬🇷🇳🇱 (@malin__johanna) March 10, 2022
Tusse kærði sig kollóttan um það allt saman.
that’s their problem i’m enjoying Iceland🥰 https://t.co/KPyox6TPz0
— Tusse (@tusseofc) March 10, 2022
(Það er þeirra vandamál, ég er að njóta Íslands.)
Enda virðist hann vera að hugsa um að setjast hér að.
I’m thinking bout moving here😍 #iceland🇮🇸 pic.twitter.com/uACf0w0PWM
— Tusse (@tusseofc) March 11, 2022
(Ég er að hugsa um að flytja hingað)
Við tökum hann auðvitað á orðinu og bjóðum Tusse hjartanlega velkominn.