Þriðjudagur 17. desember, 2024
-0.2 C
Reykjavik

Edda óttaðist fyrrverandi kærasta: „Hann tók upp kynferðisleg myndbönd af mér og geymdi þau“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Þvert á móti mun hatrið mitt magnast svo að það getur aldrei endað öðruvísi en að koma þér virkilega illa.“ Þessi skilaboð fékk Edda Pétursdóttir send frá fyrrverandi kærasta, en Stundin birti nokkur þessara skilaboða í dag.

Tók upp myndbönd og geymdi þau

Edda og maðurinn bjuggu í sitthvoru landinu um tíma þegar þau voru saman.

„Við vorum í fjarsambandi og gerðum ýmislegt á Skype. Það sem ég vissi ekki var að hann tók upp kynferðisleg myndbönd af mér og geymdi þau,“ segir hún.

Eftir að þau hættu saman byrjaði maðurinn að saka hana oftar um að hafa haldið framhjá sér og hótaði að ef hún myndi ekki viðurkenna það þá ætlaði hann að dreifa myndböndunum af henni.

Edda lýsir hegðun hans eftir sambandsslitin og segir að þá hefði ofbeldið aukist.

„Þá skapaðist einhvers konar umsátursástand,“ segir hún og bætir við að hann hefði sent henni tölvupóst oft í viku þar sem hann sakaði hana um svik og „fór fram á að ég kæmi heiðarlega fram við sig.“

- Auglýsing -

Með tímanum fækkaði tölvupóstunum en yfir tæpt ár eftir sambandsslitin sendi hann henni tæplega áttatíu tölvupósta og fjölmörg smáskilaboð. „Í flestum voru einhvers konar hótanir og svo sagði hann ógeðslega hluti um mig,“ segir hún.

Hann á að hafa sagst vera með myndbönd af henni á USB-lykli og hótað að skilja lykillinn eftir á fjölförnum stað.

Hótar að birta af henni nektarmyndbönd

Edda segir í nýjasta þætti af Eigin Konur sem birtist á Stundinni fyrr í dag að hún hafi lifað í stöðugum ótta í tæpan áratug við að fyrrverandi kærasta. Maðurinn hótaði henni stöðugt að hann myndi standa við hótanir sínar um að birta af henni nektarmyndbönd. Hún segir hann hafa tekið myndböndin án hennar leyfis og vitundar og hótað að birta þau ef hún myndi ekki verða að óskum hans.

- Auglýsing -

Edda var í sambandi með manninum frá 2009 til 2012. Hún var þá ný orðin tvítug en hann ellefu árum eldri og þekktur á Íslandi. Hún segir hann hafa beitt sig andlegu ofbeldi á meðan sambandinu stóð og var stöðugt að saka hana um að hafa haldið framhjá sér. Edda segir það hefði ekki átt við nein rök að styðjast en þetta aðeins versnaði og undir lok sambandsins lýsir hún hegðun hans sem þráhyggjukenndri.

Ósátt við vinnubrögð lögreglu

Edda reyndi að leita til lögreglu vegna málsins undir lok árs 2012 og segist vera afar ósátt við viðbrögðin sem hún fékk. Hún segir að henni fannst lögreglan ekki hafa sýnt þessu neinn sérstakan áhuga.

„Skilaboð lögreglunnar voru skýr: Það væri best að setja þetta ekki inn í lögreglukerfið því maðurinn gæti þá séð það og það væri ekki gott fyrir mig. Svo lét lögreglumaðurinn mig hafa símanúmerið sitt og kvaddi mig,“ segir hún.

Eftir að hafa leitað til Bjarkarhlíðar í fyrra fékk hún að vita að þetta væri ekki rétt, að það væri hægt að skrá mál án þess að meintur gerandi fái að vita það.

#MeToo-bylgjan sparkið sem hún þurfti

Edda segir að hún finnur ekki eins mikið fyrir óttanum sem var mjög fyrirferðamikill í lífi hennar í mörg ár.

„Það þurfti heila #Metoo-bylgju til að ég leitaði mér aðstoðar, hún var sparkið sem ég þurfti. Ég er ekki eins hrædd núna. Það er svo gott að finna að fólk trúir mér. Ég var svo hrædd við að segja frá því að á sínum tíma var gert lítið úr þessu og hann þar að auki frekar þekktur maður,“ segir hún.

„Ég ákvað að stíga fram núna ef það er einhver möguleiki á að ég geti hjálpað, þó það sé ekki nema einni konu.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -