Rússar gerðu árásir á leikhús og sundlaugabyggingu í Maríupól í gærkvöldi en greindi breski miðillinn The Guardian frá árásinni. Enn er óvíst um afdrif rúmlega 400 manns eftir árásina en höfðu óléttar konur og börn leitað sér skjóls í byggingunni.
Þá hafa myndir sýnt myndir frá rústunum en fjöldi látinna liggur ekki fyrir.
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði Rússland vera hryðjuverkaríki í ávarpi sínu í gær og kallaði um leið eftir harðari refsiaðgerðum gegn Rússum. Þá féllu ummæli Joe Biden, Bandaríkjaforseta í grýttan jarðveg hjá rússnesku þjóðinni en kallaði hann Vladimir Pútín, Rússlandsforseta stríðsglæpamann.
Viðræður milli Úkraínu og Rússlands halda áfram í dag en fulltrúar beggja ríkja hafa sagst nokkuð vongóðir um að samkomulag væri skammt undan.