- Auglýsing -
Vinsæli raunveruleikaþátturinn The Bachelor fékk á dögunum endurgeiðslu frá íslenska ríkinu en voru það hvorki meira né minna en 75 milljónir króna samkvæmt heimildum mbl.is.
Samkvæmt lögum eiga framleiðendur sjónvarpsþátta eða kvikmynda á Íslandi kost á að fá allt að 25 prósent endurgreitt af framleiðslukostnaði sem fer fram hér á landi. Því má ætla að framleiðslan á Íslandi hafi kostað hið minnsta 300 milljónir króna en fóru tökurnar fram í nóvember á síðasta ári.
Þáttaröðin sem tekin var upp á Íslandi var sú 26. í röðinni en síðasti þáttur seríunnar var sýndur í síðustu viku.