Um klukkan fjögur í dag barst lögreglunni á Norðurlandi Eystra tilkynning um bruna í verksmiðju Pharmartica á Grenivík. Þar hafði orðið sprenging og eru karl og kona mjög alvarlega slösuð, þau eru starfsmenn verkjsmiðjunnar og eru á leið með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Einn í viðbót var fluttur á sjúkrahús með minniháttar reykeitrun.
Fimm aðrir starfsmenn voru í verksmiðjunni og er unnið að því að veita þeim áfallahjálp.
Rolf Tryggvason, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á Akureyri, segir í samtali við fréttastofu RÚV að búið sé að slökkva eldinn.
Pharmartica sérhæfir sig í framleiðslu á snyrtivörum, fæðubótarefnum, hár- og líkamssápum, smyrslum, mixtúrum og sótthreinsandi lausnum. Þar eru meðal annars framleiddar vörur undir nafninu Apótek sem vinsælar hafa verið í gegnum árin.