- Auglýsing -
Fimm börn liggja inni á Landspítala með COVID-19, þar af eitt á nýburagjörgæslu, vökudeild spítalans. Þetta kemur fram í stöðuyfirliti frá Landspítalanum.
Alls eru 59 sjúklingar á Landspítala með COVID-19, þar af 54 með virkt smit. Tveir eru á gjörgæslu, báðir í öndunarvél.
Landspítali er enn á neyðarstigi en fyrir helgi var ýmsum takmörkunum aflétt. Hildur Helgadóttir, formaður farsóttanefndar, sagði í fréttum í gær að staðan væri þó enn þung á sjúkrahúsinu. Faraldurinn sé hægt og rólega á niðurleið en sé ekki enn að baki. Eflaust verði álíka fjöldi covid-smitaðra inniliggjandi nokkrar vikur til viðbótar.