Nokkuð er um það að fólk lendi í því að hrapa niður flokka í lánshæfismati hjá Creditinfo eftir að hafa verið sett í vöktun hjá Motus. Einstaklingur sem ræddi við Mannlíf hafði orðið fyrir því, jafnvel þótt um væri að ræða deilumál; umdeildan reikning sem viðkomandi var búinn að vísa til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.
Mannlífi hafa borist ábendingar neytenda um að erfitt sé að eiga við sum innheimtufyrirtæki, flókið að átta sig á kerfinu og að samskipti við fyrirtækin gangi gjarnan hægt fyrir sig.
Mannlíf vill gjarnan vita hver reynsla lesenda er af Motus eða öðrum innheimtufyrirtækjum og hvetur lesendur til að kjósa í skoðanakönnuninni hér fyrir neðan.