Glænýtt og spennandi helgarblað Mannlífs er komið út! Blaðið er hægt að lesa hér á vefnum og svo má verða sér úti um ókeypis eintak í Bónus, Hagkaupum og á N1.
Sigríður Eyþórsdóttir Eurovision-fari er í forsíðuviðtali Mannlífs að þessu sinni. Þar segir hún í einlægu viðtali frá lífshlaupi sínu, áföllum og sigrum.
Simbi segir frá því hvernig nýtt bros bætti lífsgæði hans til mikilla muna, en Simbi varð tannlaus um þrítugt.
Reifaður er mismunur á milli íslenska réttarkerfisins og þess sænska, hvað varðar nauðgunardóma og sjónum beint að skilorðsbindingu slíkra dóma. Baksýnisspegill og sakamálið eru á sínum stað. Áhugaverðir og skemmtilegir pistlar, Stækkunarglerið, viðtöl og ótal margt annað spennandi.
Blaðinu fylgir að þessu sinni veglegt tímarit Víns & Matar, með ótal tapas-uppskriftum og fróðleik.
Verði ykkur að góðu!