Nýr samningur um ofbeldislausa og örugga skemmtistaði til ársins 2024 var undirritaður í dag, föstudaginn 8. apríl. Er þetta í fjórða sinn sem samkomulag um verkefnið er undirritað en stefnt er á aukinn sýnileika verkefnisins í þetta sinn samhliða fjölgun aðila að samkomulaginu, en þetta kemur fram í frétt Reykjavíkurborgar.
Aðilar að samkomulaginu eru Reykjavíkurborg, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Samtök ferðaþjónustunnar, Ríkislögreglustjóri, Neyðarlínan og ný Samtök reykvískra skemmtistaða.
Markmið samkomulagsins er að standa að vitundarvakningu og tryggja öryggi gesta og starfsfólks á skemmtistöðum í Reykjavík en með því er stefnt á að fyrirbyggja allt mögulegt ofbeldi á skemmtistöðum, þ.m.t. kynbundna og kynferðislega áreitni, vændi og mansal, sem og ofbeldi sem byggist t.d. á fordómum eða hatri, svo sem í garð innflytjenda eða hinsegin fólks.
Ný samtök skemmtistaða voru stofnuð samhliða undirrituog og bera þau heitið Samtök reykvískra skemmtistaða. Í forsvari fyrir samtökin eru þau Birgitta Líf Björnsdóttir frá Bankastræti club, Geoffrey Þ. Huntingdon – Williams frá Prikinu, Húrra o.fl. og Ásgeir Guðmundsson frá Röntgen. Auk þeirra skrifuðu 26 fulltrúar frá reykvískum skemmtistöðum undir stofnskjal samtakanna og viðbúið að þeir verði fleiri strax á næstu dögum.
Í frétt Reykjavíkurborgar segir að rekstraraðilum skemmtistaða í borginni séu boðnir velkomnir að samkomulagi um ofbeldislausa og örugga skemmtistaði.