Í gær var opnað fyrir umsóknir á 35 þúsund lestarpössum til að ferðast innan aðildarríkja Evrópusambandsins í sumar. Í haust verður miðunum deilt út og er þetta hluti af verkefninu Discover EU sem legið hefur á ís síðustu tvö ár vegna Covid-19.
Nú ætlar framkvæmdastjórn ESB hins vegar að setja allt á fullt á ný og gefa fleiri lestarpassa en áður og nú mega íslenskir unglingar taka þátt.
Þetta er líka í fyrsta sinn sem Norðmenn, Tyrkir, Serbar og íbúar Liechtenstein og Norður-Makadóníu geta sent inn umsóknir. Það er þó sett skilyrði um að þátttakendur séu fæddir einhvertíma á milli 1. júlí 2003 og 30. júní 2004.
Umsóknarferlið er í formi spurningaleiks og síðan verður lestarpössum deilt út í hlutfalli við íbúafjölda í hverju landi fyrir sig.
Hægt er að byrja umsóknarferlið með því að smella hér.