Laugardagur 18. janúar, 2025
0.8 C
Reykjavik

Fjóla segist aldrei hafa fengið krónu fyrir vinnu sína með Eddu Falak – ýjað að andlegu ofbeldi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Mér finnst skrýtið að ætlast til þess að þú sért að vinna frítt,“ segir Edda varðandi umrædda gagnrýni og segir það skrítið að fólk sé að fara fram á að hlaðvörp séu frí. „Það er framleiðslukostnaður, þú ert með fólk í vinnu við það að klippa þættina. Það er því tímakaup og allskonar kostnaður á bakvið þetta eins og búnaður og annað,“ segir Edda Falak í þættinum Aðalpersónur á Stöð 2.

Fjóla Sigurðardóttir, sem stofnaði hlaðvarpsþáttinn Eigin konur með Eddu Falak, segir í færslu á samfélagsmiðlinum Twitter að hún hafi aldrei fengið krónu fyrir vinnu sína við hlaðvarpsþáttinn sem á skömmum tíma varð vinsælasta hlaðvarp landsins.

Ummælin virðast hafa farið fyrir brjóstið á Fjólu þar sem hún segir í færslu:

Mars 2021 var fyrsti Eigin konu þátturinn – blóð, sviti og tár voru sett í þessa vinnu, frá okkur öllum ásamt framleiðslustjóranum okkar. Áskriftir og sponsar – við Davíð höfum ekki séð krónu fyrir okkar vinnu.“

Tilefni færslu Fjólu var viðtal við Eddu í þættinum Aðalpersónur á Stöð 2 sem er í umsjón Lóu Bjarkar Björnsdóttur. Þar ræddu Lóa Björk og Edda þá gagnrýni sem heyrst hefur um að Edda sé að græða áskriftatekjur af sögum þolenda sem koma fram í Eigin konum.

- Auglýsing -

Í færslunni taggar hún einnig framleiðslustjórann Davíð Goða. Hann deilir færslu Fjólu og bætir við með færslu þar sem hann ýjar að því að Edda hafi beitt Fjólu andlegu ofbeldi.

 

- Auglýsing -

 

Í samtali við DV, segist Edda ekki kannast við þessar ásakanir og að þær séu ósanngjarnar og ekki sannleikanum samkvæmt:

„Það er enginn ágreiningur um það að Fjóla og Davíð Goði eiga inni peninga hjá mér og það hefur aldrei staðið annað til að en að það verði gert upp. Hins vegar hafa þau hvorugt verið í sambandi við mig varðandi það uppgjör og því finnst mér þessar árásir á Twitter einkennilegar,“ segir Edda í samtali við DV.

Að hennar sögn hefur hún ítrekað reynt að heyra í Fjólu til þess að ljúka uppgjöri án þess að brugðist hafi verið við. Edda staðfestir að samstarfi hennar og Fjólu hafi lokið þegar ósætti kom upp milli þeirra. „Ég var ósátt við framlag og vinnubrögð varðandi þáttagerðina og í kjölfarið lauk samstarfinu,“ segir Edda.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -