Fregnir hafa borist af fuglaflensu á Íslandi síðustu daga en nú hafa tilfelli verið formlega staðfest í villtum fuglum hérlendis. Þó virðist ekki einungis um villta fugla að ræða, þótt tilfelli í öðrum fuglum séu ekki staðfest, en hænur á bóndabæ á Skeiðum sýndu einkenni sjúkdómsins og voru aflífaðar í gær. Matvælastofnun hefur sent frá sér tilkynningu um málið.
Samkvæmt Matvælastofnun hafa tilfelli fuglaflensusmita verið staðfest í þremur villtum fuglum á landinu undanfarna daga. Þar er um að ræða heiðagæs við Hornafjörð, hrafn á Skeiðum í Árnessýslu og súlu rétt við Strandakirkju við Suðurstrandaveg. Hænsin sem sýndu einkenni sjúkdómsins voru haldin á bænum þar sem hrafninn hafði áður fundist. Þegar hafa verið tekin sýni úr hænsnunum og þau send til greiningar.
„Fuglaflensuveiran sem staðfest hefur verið í villtum fuglum er af gerðinni H5. Meinvirkni veirunnar er ekki þekkt. Beðið er niðurstaðna frekari greiningar frá erlendum rannsóknarstofum,“ segir í tilkynningu Matvælastofnunar.
Á vef Matvælastofnunar segir ennfremur að viðbragðsáætlun stofnunarinnar um viðbrögð og varnir gegn smitandi sjúkdómum í fuglum hafi verið virkjuð.
Stofnunin bendir öllum alifuglaeigendum á að einangra fugla sína frá villtum fuglum með því að halda þá undir þaki og girða af svæði þeirra.
Tekið er fram að þau afbrigði fuglaflensunnar sem mest hefur verið um í nágrannalöndum okkar undanfarið hafi ekki valdið sýkingum í fólki. Auk þess er ekki talin hætta á því að fólk smitist af veirunni með neyslu eggja eða kjöts af alifuglum.
Þar sem aldrei er unnt að útiloka smit með fullri vissu er fólki þó bent á að gæta sóttvarna við handfjötlun á veikum og dauðum fuglum.
„Matvælastofnun hvetur almenning til að tilkynna um dauða villta fugla sem finnast á víðavangi ef ekki er augljóst að þeir hafi drepist af slysförum. Best er að tilkynna í gegnum ábendingarkerfi á heimasíðu Matvælastofnunar (mast.is). Þörf á sýnatöku verður metin af stofnuninni,“ segir í tilkynningu Matvælastofnunar.