Sjálfstæðismenn í þeim armi sem fylgja Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfisráðherra að málium eru ævareiðir vegna bankaklúðurs Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra sem seldi sérvöldum fjárfestum hlut almennings í Íslandsbanka á undirverði. Þykir nokkuð einsýnt að framganga formannsins hafi þegar kostað flokkinn hugsanlegan kosningasigur í Reykjavík. Ofan á veikt framboð Hildar Björnsdóttur, sem ekki hefur sópað að sér fylgi, bætist meint spilling ráðherrans. Kosningasigur í Reykjavík sé því brostin von. Sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að reka Bankasýsluna í heild sinni þykir í besta falli vera yfirklór og kalla verði eftir pólitískri ábyrgð eins og Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra lagfði málið upp í blaðaviðtali. Rætt er um að eðlilegt sé að kalla til landsfundar flokksins ef fer sem horfir í haust og kjósa um formannsstólinn. Bjarni er fremur vinafár þessa dagana en nýtur þó stuðnings forystu Vinstri grænna til áframhaldandi starfa sem gæslumaður almenningsfjár …