- Auglýsing -
Daði Einarsson hlaut í gærkvöldi BAFTA verðlaun fyrir tæknibrellur í vinsælu Netflix-þáttunum The Witcher. Þættirnir unnu einnig til verðlauna fyrir förðun og hár. Ásamt Daða hlutu þeir, Gavin Round, Aleksander Pejic, Stefano Pepin, Jet Omoshebi og Oliver Cubbage einnig verðlaunin.
Daði er einnig þekktur fyrir tæknibrellur sínar í stórmyndunum Gravity og Everest. Þá hafa nokkrir Íslendingar hlotið BAFTA verðlaunin áður en síðast var það Hildur Guðnadóttir fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Joker.