Enn er beðið eftir leyfi frá stjórnvöldum fyrir því að skjóta eldflaug á loft frá Langanesi. Skotið hefur þegar dregist í marga mánuði en er geimskotið mun vera það stærsta sem farið hefur frá Evrópu. Skjóta á eldflauginni á sporbraut umhverfis jörðu en stefna Bretar að því að gera slíkt hið sama á næsta ári.
Er það Skoska eldflaugafyrirtækið Skyrora sem stendur fyrir verkefninu en fjallað var um málið í Morgunblaðinu í dag. Samkvæmt heimildum blaðsins er allt tilbúið fyrir skotið en hefur Samgöngustofa ekki treyst sér til þess að veita leyfið. Skyrora sendi nýlega frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á stjórnvöld að veita leyfið. Þá er sagt að skotið myndi hafa áhrif á lykilsamband evrópskra geimvísinda en viljayfirlýsing Íslands og Bretlands var undirrituð í ágúst á síðasta ári.