Svartir veggir, svartar flísar og svört húsgögn er meðal þess sem má sjá í íbúð að Skeljanesi 8 í Skerjafirði. Það má með sönnu segja að setið sé um fasteignir í Skerjafirðinum en ný eign er nú þar á sölu. Um er að ræða 410 fermetra húsnæði en kjallara hússins hefur verið skipt upp í tvær íbúðir, og það rúmgóðar. Önnur þeirra er um fimmtíu fermetrar og hin sjötíu. Húsið er teiknað af Gísla Halldórssyni og stendur það á eignarlóð með dásamlegu útsýni. Lind fasteignasala hefur eignina á skrá.
Svartur er allsráðandi á þessu heimili.
Baðherbergið er ótrúlega töff og þessar flísar sér maður ekki á hverjum degi. Takið eftir hversu vel mynstrað gólfið fer með veggflísunum – Skemmtilegt.
Það vantar ekki plássið í þennan borðstofukrók. Gluggarnir eru í rómantískum stíl og rýmið bjart. Þá er skemmtilegt að sjá hvernig bekkurinn er settur á móti borðstofustólunum.
Þetta útsýni er draumur. Þá geta áhugasamir séð fleiri myndir á vef fasteignasölunnar.