Afmælisbarn dagsins er útvarps- og blaðamaðurinn Frosti Logason. Er hann 44 ára einmitt í dag.
Frosti var gítarleikari og stofnmeðlimur íslensku hljómsveitarinnar Mínus sem sigraði í Músíktilraunum árið 1999. Þá var hann annar stjórnandi hins vinsæla útvarpsþáttar Harmageddon á X-inu en þátturinn var umdeildur en vakti oftar en ekki athygli í samfélagsumræðunni. Undanfarið hefur Frosti verið einn af stjórnendum Íslands í dag á Stöð 2 og skrifað fyrir Fréttablaðið og Vísi en er nú í leyfi frá störfum vegna ásakana fyrrverandi kærustu hans um andlegt ofbeldi. Gekkst Frosti við ofbeldinu og baðst opinberlega afsökunar á hegðun sinni.
Mannlíf hringdi í Frosta og spurði hann hvort og þá hvernig hann myndi halda upp á afmælið.
„Konan mín er búin að sjá til þess að ég sé trítaður eins og konungur í dag. Ég er búinn að fara í nudd og fá dýrindis morgunmat. Og svo er fjölskyldan að koma í kaffiboð seinni partinn.“ Aðspurður hvað sé framundan hjá honum svaraði hann: „Ekkert til þess að tala um, bara halda áfram að njóta lífsins með fjölskyldum og vinum.“
Mannlíf óskar Frosta til hamingju með daginn.