Um fátt annað er rætt innan Sjálfstæðisflokksins en yfirvofandi brotthvarf Bjarna Benediktssonar formanns sem hefur leitt flokk sinn í þá eyðimerkurgöngu sem blasir við í fylgishruni undanfarinna ára. Núverandi staða eftir sölu pabbabréfanna í Íslandsbanka og daprar horfur í Reykjavík hafa svo sett formanninn í erfiðari stöðu en nokkru sinni fyrr. Sjálfur mun Bjarni gera sér grein fyrir alvörunni. Hermt er að hann hafi lagt upp í þetta kjörtímabil sem það síðasta og hyggist hætta að því loknu. En hann vill ráða því hver tekur við keflinu. Það er sögð ástæðan fyrir því að hann niðurlægði Guðlaug Þór Þórðarson og svipti hann utanríkisráðherrastólnum og setti Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttir þangað í staðinn. Rætt er um að hugmynd hans sé sú að skipta við hana um ráðherrastól fyrir lok kjörtímabilsins og undirbúa brotlendingu sína og hana sem arftaka sinn. Fari kosningarnar illa fyrir Sjálfstæðisflokkinn má búast við að þetta gerist innan árs og Bjarni hrökklist til útlanda og Guðlaugur Þór og Þórdís Kolbrún berjist um formannsstólinn …