Búist er við rigningu eða slyddu um norðanvert landið í dag og í kvöld. Þá verður hvasst í veðri á Vestfjörðum og fylgir þar dálítil snjókoma. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að norðaustanáttin muni ráða ríkjum á morgun.
„Verður vetrarlegt um að lítast norðanlands með snjókomu eða slyddu á köflum. Sunnantil á landinu nær sólin að hlýja okkur, sérstaklega þar sem dálítið skjól er fyrir norðanáttinni. Kólnar þó smám saman þegar líður á vikuna með éljum og frosti fyrir norðan.“
Íbúar höfuðborgarsvæðisins mega þá búast við prýðis veðri í dag og á morgun en gert er ráð fyrir léttskýjuðu eða heiðskýru veðri og hita á bilinu 8 til 10 stig.