Systur (og Mister sister) komust áfram í undankeppni Eurovision í gærkvöldi, landsmönnum vafalaust til mikillar ánægju. Flutningur hópsins var landi og þjóð til sóma, enda um reynslubolta á sviði tónlistar að ræða.
Eins og greint hafði verið frá í aðdraganda keppninnar höfðu veðbankar ekki spáð íslenska laginu upp úr riðlinum. Líkur í veðbönkum standast hins vegar hreint ekki alltaf, eins og dæmin sanna, en auk þess getur margt breyst eftir að keppendur hafa stigið á svið og sýnt Evrópu hvað í þeim býr.
Nú þegar landinn hefst handa við undirbúning Eurovision-partía vill Mannlíf gjarnan vita hve líklegt lesendum þykir að framlag Íslands, lagið Með hækkandi sól, lendi í einu af tíu efstu sætunum í aðalkeppninni.
Hér fyrir neðan má greiða atkvæði.