Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um hópslagsmál klukkan hálf tíu í gærkvöldi. Slagsmálin áttu að hafa gerst á skemmtistað í miðbænum en þegar lögregla mætti á vettvang var „allt rólegt,“ er segir í dagbók lögreglu.
Ósáttur íbúi Kópavogs hafði samband við lögreglu um klukkan tvö í nótt. Íbúinn kvartaði undan hávaða frá byggingakrana í hverfinu sem hefur að öllum líkindum truflað svefn. Lögregla hafði samband við eiganda kranans, sem sagðist ætla að gera ráðstafanir. Fyrr um kvöldið stöðvaði lögregla bifreið á Seltjarnarnesi. Ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis en kom í ljós að hann hafði einnig verið sviptur ökuréttindum.