Kourtney Kardashian og trommuleikarinn Travis Barker giftu sig aftur síðast liðna helgi, í þetta skipti var það löglegt. Parið hafði „gift sig“ í Vegas fyrir mánuði síðan en létu þau pússa sig saman í dómshúsinu um helgina.
Miðillinn Daily Mail greindi frá tíðindinum en kemur fram að aðeins tveir aðrir hafi verið viðstaddir athöfnina, þau Mary Jo Campell (amma Kourtney) og Randy Barker (faðir Travis). Að lokinni athöfninni keyrðu hjónin frá dómshúsinu í svörtum fornbíl, merktum skilti sem á stóð: Ný gift.
Erlendir slúðurmiðlar hafa farið á flug í kjölfarið en talið er að brúðkaupsveislan muni fara fram á Ítalíu á næstu vikum. Parið hefur vakið mikla athygli, enda ástfangið upp fyrir haus. Þá hafa þau einnig talað um það opinberlega að þeim langi til þess að eignast barn saman.