Miðvikudagur 15. janúar, 2025
6.6 C
Reykjavik

Íbúar munu fá greitt fyrir að flokka rusl: „Kostar þig lítið að vera sóði“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Íbúar tveggja sveitarfélaga geta næstu þrjú ár fengið greitt fyrir að flokka og skila endurvinnanlegum úrgangi. Þetta kemur fram á Mbl.is.

Um er að ræða tilraunaverkefni á vegum endurvinnslufyrirtækisins Pure North. Fyrirtækið hefur samið við tvö sveitarfélög en fleiri hafa sýnt verkefninu áhuga.

Fyrirkomulagið er þannig að íbúar sveitarfélaganna flokka úrganginn sjálfir, skila á móttökustað Pure North og fá greitt fyrir skilin.

„Kerfið í dag er þannig að það kost­ar þig lítið að vera sóði,“ segir Sigurður Halldórsson, forstjóri Pure North. Hann segir að með þessu móti fái fólk umbun fyrir að flokka eftir kúnstarinnar reglum. „Þeir sem ekki gera það þurfa að borga meira.“ Hann segir stefnt að því að reisa fyrstu fimm móttökustöðvar fyrirtækisins í september.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -