Rihanna er nú orðin mamma. Stofnandi Fenty Beauty tískuveldisins fæddi sitt fyrsta barn, dreng, með rapparanum A$AP Rocky.
Frumburðurinn fæddist 13. maí í Los Angeles.
Mannlíf greindi frá því í lok janúar að Rihanna væri ólétt eftir að myndir birtust af söngkonunni (34). Rihanna var ófeimin við að sýna bumbuna með stolti við hlið kærasta síns Rocky (33).
Mánuð fyrir óléttutilkynninguna, ýtti Rihanna undir sögur af því að hún væri ólétt þegar hún snæddi á veitingastaðnum Carbone. Heimildarmaður sagði að hún væri; „mjög sennilega bara að drekka sódavatn á meðan hún strauk blítt um maga sinn.“
Söngkonan sem gerði lagið „Diamonds“ vinsælt, virtist í fyrstu vilja fela óléttuna með því að klæðast fyrirferðamiklum yfirhöfnum og víðum fötum. En undir lok meðgöngunnar sýndi hún stolt óléttubumbuna, klædd í glæsilegan hátískufatnað.