Glænýtt og spennandi tölublað Mannlífs er komið út. Nældu þér í ókeypis eintak í Hagkaup, Bónus eða á N1. Vefútgáfu blaðsins má lesa hér.
Forsíðuviðtalið að þessu sinni er við hjónin Gunnar Árnason og Hlédísi Sveinsdóttur, sem reyndu á sínum tíma að eignast barn með aðstoð Art Medica. Hlédís fór í eggheimtur og voru tekin úr henni 50 egg. Þau segja að fósturvísar hafi horfið og grunar að maðkur sé í mysunni. „Það er rökstuddur grunur núna um að það hafi orðið til börn, okkar börn, úr þessum fósturvísum sem gufuðu upp í meðferðinni og engin viðhlítandi skýring hefur fengist á,“ segir Gunnar.
Einnig segjast hjónin hafa komist á snoðir um að ótal heilbrigðisstarfsmenn, sem þau telja alls óviðkomandi sér, hafi ítrekað farið inn í sjúkraskrá Hlédísar. Þeim hefur ekki tekist að fá haldbærar skýringar á málinu.
Karlmaður, sem hefur á tveimur dómsstigum verið dæmdur fyrir nauðgun sem átti sér stað árið 2019, gengur enn laus um götur borgarinnar á meðan brotaþoli hans lifir í stöðugum ótta. Mannlíf ræddi við konuna sem segir í fyrsta sinn frá atburðum næturinnar sem átti eftir að umturna lífi hennar og því erfiða ferli sem á eftir fór. Fleiri aðilar sem tengst hafa brotamanninum með einum eða öðrum hætti ræddu við Mannlíf og renna stoðum undir ákveðið varhugavert mynstur hans.
Í blaðinu er að finna fleiri áhugaverð viðtöl og fastir liðir eru á sínum stað; baksýnisspegill, sakamálið, pistlar, stjörnuspeki og fjögur á förnum vegi, svo eitthvað sé nefnt.
Hér má lesa vefútgáfu blaðsins.