- Auglýsing -
Líkt og fjölmiðlar um allan heim hafa fjallað um, létu Kourtney Kardashian og Travis Barker pússa sig saman fyrr í mánuðinum. Kourtney birti myndir á Instagram síðu sinni í gær frá athöfninni sem fór fram í bænum Portofino á Ítalíu. Kourtney hefur breytt nafni sínu á Instagram og ber nú einnig eftirnafn Travis – Barker.
Hjónin eru enn stödd á Ítalíu með fjölskyldu og vinum. Gerðu þau sér glaðan dag á sunnudaginn síðasta og stukku fram af snekkju, sem er svo sannarlega af stærri gerðinni.