„Breytingin gerir það að verkum að við fáum loksins Cocoa Puffs aftur til Íslands og landsmenn fá aftur þetta vinsæla morgunkorn með minna sykur- og fituinnhaldi og meira próteini,“ að því er segir í tilkynningunni frá Nathan og Olsen, umboðsaðila General Mills hér á landi.
Cocoa Puffs, hið sívinsæla morgunkorn sem hvarf úr hillum íslenskra verslana í ársbyrjun 2021, er væntanlegt aftur í verslanir hér á landi á næstu dögum. Fyrsta sendingin hefur nú þegar borist til landsins.
Þá kemur fram að uppskriftin hafi verið aðlöguð þannig að hún samræmist evrópulöggjöf sem gildir á Evrópska efnahagssvæðinu.
„Við teljum að framleiðanda hafi tekist mjög vel til og við erum mjög ánægð með að geta boðið landsmönnum aftur upp á hið frábæra vörumerki Cocoa Puffs líkt og við höfum gert undanfarna áratugi,“ segir Ari Fenger eigandi Nathan & Olsen, umboðsaðila General Mills hér á landi.