- Auglýsing -
Gunnar Þór Sigurjónsson ljósmyndari er í viðtali í nýjasta tölublaði tímaritsins Good Light sem er kennslublað fyrir ljósmyndara. Mynd hans af Nínu Dagbjörtu 19 ára söngkonu prýðir forsíðuna, auk þess sem þau eru á níu opnum í blaðinu sjálfu.
„Sit hér gríðarlega stoltur með mína stærstu birtingu hingað til,“ segir Gunnar Þór stoltur í Facebook-færslu um leið og hann deilir myndum úr blaðinu. „Ásamt myndunum var einnig ítarleg grein um mig hvernig ég nálgast samvinnu með módelum og hvernig við ljósmyndarar eigum að vera duglegri að fanga aðrar tilfinningar en bros.“
Nína Dagbjört deilir tíðindunum á Instagram og segist ótrúlega stolt af Gunnari Þóri. „Við komumst á forsíðuna. Ég var svo heppin að blaðið vildi fá myndirnar sem Gunnar hafði tekið af mér.“