Búast má við blíðskaparveðri um allt land þessa helgina. Á laugardag og sunnudag verður hiti á bilinu 9 til 20 gráður og sól víða um landið. Íbúar í Árnesi geta átt von á tuttugu gráðum, sólskini og logni seinnipart sunnudags og fram á þriðjudagsmorgun.
Þá er búist við allt að átján stiga hita á Akureyri og fimmtán gráðum á höfuðborgarsvæðinu. Tekur að kólna örlítið á miðvikudag en í hugleiðingum veðurfræðings segir: „Norðaustlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum. Hiti víða 8 til 15 stig að deginum, en svalara í hafgolu. Á fimmtudag: Útlit fyrir fremur hæga norðlæga átt. Skýjað og svalt fyrir norðan en bjart á köflum syðra og hiti að 16 stigum.“