„Síðan þegar ég dett í það, í síðasta skiptið, þá gjörsamlega missti ég stjórnina aftur.“ Þetta segir Helga Lilja Óskarsdóttir í viðtali við Stundina um bardaga sinn við neysluna sem hún flúði í til að deyfa vanlíðan sína en einnig til að finna félagsskap. Eftir að hafa orðið edrú þegar hún gekk með barnið sitt missti hún fótanna aftur og sökk djúpt.
Helga Lilja Óskarsdóttir flúði í neyslu til að deyfa vanlíðan sína en einnig til að finna félagsskap fólks sem var utangátta eins og hún. Það var ekki fyrr en hún áttaði sig á því hversu algjörlega neyslan tók af henni stjórnina að hún varð hrædd og fann hjá sér eigin vilja til að verða edrú. Áður hafði hún hins vegar misst stjórnina algjörlega og farið á bólakaf.
Glímdi við alkahólisma og þunglyndi
Helga ræðir um æskuna sína og segist hafa alist upp við erfiðar aðstæður í æsku. Foreldrar hennar skildu þegar hún var fimm ára gömul en faðir hennar glímdi við alkahólisma og þunglyndi meðal annars. Eftir að faðir hennar kynntist annarri konu og hóf að búa með henni hafi hins vegar sigið á ógæfuhliðina. Sú kona hafi líka glímt við fíkn eins og faðir Helgu og töluvert mikil neysla hafi því verið inni á heimilinu.
Þrátt fyrir veikindi föður hennar voru þau feðgin náin segir Helga.
„Það er alveg gaman stundum að vera í kringum fullt fólk þegar maður er krakki. Það var oft alveg næs en oft líka slæmir tímar. Þetta var samt ekki hið týpíska dópistalíferni, þau voru rosalega góð en veik“
Var send í fóstur
Helga segir að það besta sem fyrir hana hafi komið hafi verið að vera send í fóstur, árin þar hafi verið frábær og henni liðið vel. Enn hafi þó komið til árekstra í skóla enda andinn í sveitaskólanum á Kleppjárnsreykjum verið annar en hún átti að venjast og hún ekki passað inn enda hafi hún ekki haft áhuga á „samkvæmisdansi eða hestum“ eins og hún orðar það.
En þó henni hafi liðið betur í Borgarfirðinum segir Helga að vanlíðan hennar hafi verið svo djúpstæð að hún hafi verið tilbúin að leita hvaða leiða sem var til að láta sér líða betur. Hún hafi fyrst drukkið áfengi í kringum tólf ára aldur og síðan prófað að neyta kannabisefna um þrettán, fjórtán ára aldurinn. Í lok 10. bekkjar, eftir að hún kom heim til Reykjavíkur úr fóstri í Borgarfirðinum, hafi hún farið að reykja kannabis daglega.
Brútal neysla
„Þá tekur bara við einhver brútal neysla þar sem er ekki klukkutíma stopp“
Faðir Helgu féll frá þegar hún var sextán ára. Þrátt fyrir hans bresti segir hún að þau feðgin hafi verið náin og andlát hans hafi verið henni áfall.
„Þá varð mér bara alveg sama um allt og þá tekur bara við einhver brútal neysla þar sem er ekki klukkutíma stopp. Það var bara stopp þegar maður varð að sofa. Ég held að það lengsta sem ég hafi verið vakandi hafi verið allt upp í tíu daga sko. Það er erfitt en þegar þú ert kominn á þriðja dag geturðu sigrað heiminn. Þú ert beyglaður og ruglaður en þú hefur ekki vitneskjuna um að þú sért beyglaður og ruglaður.“
Varð edrú barnshafandi
Helga fiktaði við ýmis efni en man það óglöggt. „Ég man hins vegar eftir því þegar ég notaði e-pillu fyrst, þá byrjaði boltinn að rúlla.“ Neyslan var bæði til að deyfa tilfinningar en líka leit að félagsskap. Félagsskap annarra sem ekki pössuðu inn, rétt eins og Helga upplifði með sjálfa sig.
Helga var í neyslu um nokkra hríð, allt þar til hún varð ólétt af sínu fyrsta barni, þá sautján ára gömul. Þegar hún uppgötvaði að hún væri með barni fór hún í meðferð og var edrú á meðan að á meðgöngunni stóð og í nokkra stund eftir að barnið kom í heiminn. Einhverjum mánuðum eftir að Helga átti barnið sitt fór hún að fara á djammið um helgar og þá voru jafnvel allar helgarnar undir. Hún bjó heima hjá móður sinni sem sinnti barninu. Nokkru síðar fór hún inn í AA-samtökin og var þá edrú í um tíu mánuði.
Ég dett algjörlega inn í þetta – það er enginn millivegur
„Síðan þegar ég dett í það, í síðasta skiptið, þá gjörsamlega missti ég stjórnina aftur. Það var samt bara svona tveir mánuðir,“ segir Helga. Hún áttaði sig strax á því að hún væri að fara mjög djúpt í neyslu. „Ég dett algjörlega inn í þetta, það er enginn millivegur. Eftir fyrsta kvöldið hringi ég í mömmu mína og segi: Ég er dottin í það, ég þarf einhvern veginn að koma mér inn í meðferð og þú verður að vera með barnið á meðan því ég ætla ekki að vera í kringum hann í þessu ástandi.“
Helga komst aftur inn í meðferð um tveimur mánuðum síðar. Eftir að hafa komist í meðferð á þessum tíma, árið 2012, hefur Helga haldið sig á beinu brautinni. Hún segir að ástæðan fyrir því að hún hafi komist úr neyslu hafa verið að þá hafi hana virkilega langað það sjálfa, að verða edrú. „Ástæðan var sú að það hræddi mig hvað þetta tekur stjórnina algjörlega.“
HÉR er hægt að hlusta og lesa viðtalið við Helgu í heild sinni.