Svo virðist sem ekkert lát sé á fækkun fjölda sauðfjár, kúa- og nautgripabúa hér á landi en hefur sú þróun verið nokkuð óstöðvandi frá síðustu aldamótum. Aðeins eru 229 slík bú skráð á Austurlandi í lok árs 2020 og finnast þau hvergi færri.
Austurfrétt fjallar um málið í dag en þar kemur fram að þetta megi sjá ef litið er á samantekt Hagstofu Íslands um rekstur og efnahag í fimm landbúnaðargreinum frá 2008 til 2020 sem birt vikunni. Kemur þar fram að í lok 2020 hafi heildarfjöldi sauðfjár, kúa- og nautgripabúa á Íslandi verið aðeins 2.421 talsins en þeim hefur fækkað um tæplega 400 frá 2008.
Aðal ástæða fækkunarinnar eru lágar tekjur bænda sem stunda landbúnað en meðaltekjur í sauðfjárrækt eru með því allra lægsta sem hér þekkist. Samkvæmt yfirliti Hagstofunnar hafa tekjur í landbúnaði staðið nánast alveg í stað frá árinu 2016. Kemur þar aukreitis fram að einungis einu sinni frá árinu 2008 hafi tekjur bænda aukist en það var á milli áranna 2019 og 2020 og var það aðeins um eitt prósentustig.
Flest búanna finnast á Suðurlandi eða 568 talsins. Þá finnst 436 á Norðurlandi vestra, 408 bú á Norðurlandi eystra og 330 á Vesturlandi. Eins og fram kom áður eru einungis 229 slík bú á Austurlandi.