Þetta glæsilega málverk er málað af þekktum Íslending sem hefur hingað til vakið athygli fyrir hæfileika sína í eldhúsinu. Viðkomandi birtir mynd af verkinu á Facebook undir yfirskriftinni Ástin við tjörnina. Myndin er af tveimur álftum á Tjörninni.
Listamaðurinn er enginn annar en Jói Fel bakarameistari. Jói birti mynd af málverkinu fyrr í dag og hrósin hrúgast inn hjá honum.
„Verulega flott Jói! Aldrei leiðinlegt þegar að meistarar mála eftir myndunum mínum,“ skrifar ljósmyndarinn Gaui H Pic en Jói málaði málverkið eftir ljósmynd hans.
Myndin er til sölu.
samfés