Nóttin var nokkuð róleg hjá lögreglunni í nótt en eitthvað var um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Tveggja bíla árekstur varð í hverfi 108 en meiðsl á farþegum voru minniháttar.
Í hverfi 104 var ökumaður stöðvaður í akstri, grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Reyndist bifreiðin sem hann var á stolin og gistir hann því fangageymslur lögreglu í þágu rannsóknar málsins.
Þá var tilkynnt um líkamsárás í miðbænum en gerandinn hafði flúið vettvanginn. Lögreglan fann hann stuttu síðar og handtók hann. Rannsakar lögreglan nú málið en árásarþolinn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar.
Tilkynning barst lögreglu um að bíl hefði verið ekið út af Elliðavatnsvegi. Sagðist ökumaðurinn hafa misst stjórn á bifreið sinni en hann reyndist ómeiddur. Bifreiðin var hins vegar óökufær og var hún dregin af vettvangi með dráttarbifreið.
Úr Mosfellsbæ barst lögreglu tilkynning um líkamsárás en þolandinn sat eftir á vettvangi með skurð á höfði og sagðist hann hafa rotast við árásina. Var hann fluttur á slysadeild til frekari aðhlynningar. Lögreglan rannsakar nú málið.