„Lamb fætt 21 mai! Fláð og skorið skrokkurinn horfinn! Sauðaþjófar beint fyrir utan hjá okkur!,“ sagði Agnes Klara Ben Jónsdóttir og birti myndband í Facebook-hóp sauðfjárbænda. Segir hún þau vera orðlaus yfir því sem blasti við þeim í morgun en hundurinn á bænum sat við hræið á lóð þeirra.
„Við viljum ekki trúa að ásetningurinn sé það mikill að fólk keyri upp afleggjara heim að bæ en hræið lá niðrá miðju túni hjá okkur beint fyrir utan eldhúsgluggan. Við erum staðsett í Fellunum rétt fyrir utan Egilsstaði.“ Agnes varar þá við myndbandinu og bætir við að engin tófa sé svona fær og snyrtileg við verkið. „Lögreglunni verður gert viðvart í fyrramálið.“
Við vörum við myndbandinu hér að neðan.