Aðdáendur Beyoncé og Jay Z ráku margir upp stór augu þegar hjónin sáust allt í einu birtast í salnum á Golden Globe hátíðinni án þess að hafa gengið rauða dregilinn eins og allir aðrir.
Miðlar vestanhafs halda því fram að hjónin hafi fengið að lauma sér inn um bakdyrnar og þannig sleppt því að stilla sér upp fyrir ljósmyndara á rauða dreglinum. Þau leyfðu þó ljósmyndara Golden Globe að smella nokkrum myndum af sér í salnum.
Beyoncé klæddist afar áberandi kjól á hátíðinni sem gerði það að verkum að hún gat ómögulega látið lítið fyrir sér fara.
Þess má geta að Beyoncé var tilnefnd til Golden Globe fyrir besta frumsamda lagið í kvikmynd með lagið Spirit fyrir Lion King.